|
|
Bútækni
Verkefni tengt bútækni hefur aðsetur á Hvanneyri í Borgarfirði. Símanúmer eru 4335000 / fax:: 4335098. Netfang er but@lbhi.is. Póstáritun Landbúnaðarháskóli Íslands, Bútækni, Hvanneyri, 311 BORGARNES.
Starfssvið og starfsmarkmið
Með bútækni og bútæknilegum verkefnum er í þessari umfjöllun átt við verkefni sem tengjast notkun hvers kyns tæknibúnaðar við bústörf og aðlögun nýunga og framleiðsluhátta að íslenskum aðstæðum. Þá er einnig átt við rannsóknir á vinnubrögðum og tækni við jarðrækt, fóðuröflun og hirðing búfjár.
Einnig falla undir þennan málaflokk rannsóknir á búrekstrarbyggingum og vinnuumhverfi þeirra er búskap stunda.
Tilgangur bútæknirannsóka er að stuðla að skynsamlegri beitingu beitingu tækninnar en með því er átt við að þeim fjármunum sem varið er til hagræðingar eða til kaupa á búnaði skili sér í meiri framleiðni eða á tilsvarandi hátt í betra vinnuumhverfi.
|
|
|